logo-for-printing

03. júní 2005

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 7. júní n.k. í 9,5%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 4,2 prósentur síðan í maí 2004. Í ársfjórðungsritinu Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni í dag eru færð rök fyrir nauðsyn þess að hækka vexti nú. Seðlabankinn hefur um skeið minnkað muninn á innláns- og útlánsvöxtum sínum í áföngum og verður tekið frekara skref í þá veru að þessu sinni. Því verða daglánavextir bankans hækkaðir um 0,25 prósentur og vextir á viðskiptareikningum lánastofnana í bankanum um 0,75 prósentur. Vextir á innstæðubréfum til einnar viku verða 0,15 prósentum undir stýrivöxtum bankans, þ.e. 9,35%, og fjárhæðartakmarkanir í vikulegum útboðum verða afnumdar. Munur á hæstu og lægstu vöxtum Seðlabankans hefur á einu ári verið minnkaður úr 4,9 prósentum í 3 prósentur.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar í síma 569-9600.

Nr. 14/2005
3. júní 2005

Til baka