logo-for-printing

06. apríl 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2005


Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2005 og til samanburðar í lok febrúar 2005 og í lok desember 2004.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 0,6 milljarða króna í mars sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um að viðhalda gjaldeyrisstöðu sinni. Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og nam 59,5 milljörðum króna í lok mánaðarins sem jafngildir 982 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,5% í mánuðinum.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,7 milljarða króna í mars og námu 21,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,1 milljarð króna og námu 6,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,6 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og námu 18,9 milljörðum króna í marslok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 1,8 milljarða króna og námu 23,2 milljörðum króna í lok mars.
Grunnfé bankans hækkaði í mars um 3,3 milljarða króna og nam 30,3 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.


Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 43kb)


Til baka