logo-for-printing

06. júlí 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2004 og til samanburðar í lok maí 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,8 milljarða króna í júní í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína (sjá t.d. nóvemberhefti Peningamála 2003). Nokkur gengishagnaður varð í mánuðinum og jókst gjaldeyrisforði bankans samtals um 2,7 milljarða króna. Nam hann 68,5 milljörðum króna í lok mánaðarins sem jafngildir 944 milljónum Bandaríkjadala. Gengishagnaðurinn stafaði af því að gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,8% í júní.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1,4 milljarða króna í júní og námu 23,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 1,7 milljarða króna og námu 7 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir jukust í mánuðinum um 8,1 milljarð króna, en þar af munar mestu um innstæðubréf, en innstæður innlánsstofnana hækkuðu einnig um 2,2 milljarða króna.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,1 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 3 milljarða króna í júní og námu 25,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í júní um 8,3 milljarða króna og nam 30,3 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 131 KB)

Nr. 20/2004
6. júlí 2004

Til baka