logo-for-printing

04. júní 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok maí 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok maí 2004 og til samanburðar í lok apríl 2004 og í lok desember 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í maí um 0,2 milljarða króna og nam 65,8 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 922 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,5 milljarða króna í maí í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í nóvemberhefti Peningamála 2003.

Gengi íslenskrar krónu styrktist um 1,1% í maí.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 14,6 milljarða króna í maí og námu 22,2 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 5,3 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 0,5 milljarða króna í maí og námu 28,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í maí um 11,9 milljarða króna og nam 22,1 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 133 KB)

 

Nr.16 /2004
4. júní 2004

Til baka