logo-for-printing

14. nóvember 2003

Breyttur 5000 króna seðill

Mánudaginn 17. nóvember hefur Seðlabanki Íslands dreifingu á breyttum fimm þúsund króna seðli. Eldri seðillinn er áfram lögeyrir, en verður smám saman tekinn úr umferð.

Nýi seðillinn er í grundvallaratriðum eins og hinn eldri. Á honum eru þó fjölmargar endurbætur. Með þeim verður seðillinn öruggari en sá sem fyrir er. Auðveldara verður að greina nýja seðilinn og erfiðara að falsa hann.

Útlitsbreytingarnar felast í því að fyllt er að nokkru út í spássíur sem voru á eldri seðlinum og bætt við þremur sýnilegum öryggisþáttum. Þeir eru gyllt málmþynna, nýtt vatnsmerki og öryggisþráður í litbrigðum. Auk þessa er á seðlinum reitur sem sést í útfjólubláu ljósi og fleiri öryggisþættir sem aðeins verða greindir með sérstökum búnaði.

Kristín Þorkelsdóttir og Stephen A. Fairbairn, grafískir hönnuðir, teiknuðu eldri fimm þúsund króna seðilinn, og vann Kristín að endurnýjun hans nú. Seðillinn er prentaður í seðlaprentsmiðju De La Rue plc í Englandi.

Af eldri gerð seðilsins er rúmlega ein milljón eintaka í umferð. Komið var að nýrri prentun, og var ákveðið að fjölga öryggisþáttum af því tilefni. Prentaðar hafa verið tvær milljónir nýrra seðla. Kostnaður af upplaginu er rúmlega 23 m.kr., og þar af eru rúmlega 2 m.kr. vegna nýju öryggisþáttanna.

Í tilefni af útgáfu breytts seðils verður kynningarefni sent á hvert heimili í landinu. Þar er greint frá öryggisþáttum nýja fimm þúsund króna seðilsins og eldri seðla. Á heimasíðu Seðlabankans er sömu upplýsingar að finna auk margháttaðs annars fróðleiks um íslenska seðla og mynt fyrr og nú.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 569 9600.

Nr. 29/2003
14. nóvember 2003

Kynningarskjal um öryggisatriði (PP-skjal, 1 MB)

Til baka