logo-for-printing

04. nóvember 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 25,5 ma.kr.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 4. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 25,5 milljarðar króna en á innlausn voru 26,7 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 11. nóvember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 45/2003
4. nóvember 2003

Til baka