Um Hagtölur
Hagtölur Seðlabankans
Hagtölur Seðlabankans eru útgáfa bankans á tölfræðilegum upplýsingum um íslenskt efnahagslíf. Útgáfan samanstendur af excel-töflum, tímaröðum, línuritum og lítilsháttar greiningu, auk ítarlegra lýsigagna. Kappkostað er að birta nýjar upplýsingar svo fljótt sem auðið er eftir að gögn hafa borist til bankans. Birting er kl. 16:00 á fyrirfram ákveðnum dagsetningum, sjá útgáfuáætlun.
Ábendingum og fyrirspurnum varðandi efni hagtalnanna má koma á framfæri með því að senda tölvupóst eða hringja í síma 569 9600 í Gagnasöfnun og upplýsingavinnslu Seðlabanka Íslands.
Öllum er frjálst að nota efni úr Hagtölum Seðlabankans en eru beðnir að geta heimildar.
Skýringar á táknum í töflum.
Í töflunni koma fram skýringar á táknum sem notuð eru í Hagtölum Seðlabankans.
|
Tákn |
Merking |
| * |
Bráðabirgðatala eða áætlun |
| 0 |
Minna en helmingur einingar |
| - |
Núll eða ekkert |
| ... |
Upplýsingar vantar eða tala ekki til |
| . |
Tala á ekki við |
Vegna sléttunar talna þarf samtala undirliða ekki að stemma við heildartölur.
Seðlabankinn birtir einnig fréttir um ýmsar hagstærðir íslensks efnahagslífs samkvæmt sérstakri birtingaráætlun.
Til skoðunar þarf að hafa Excel, Excel Viewer eða önnur forrit sem geta lesið Excel-skjöl.