Samstarfsaðilar
Seðlabanki Íslands á í samstarfi við ýmsa aðila bæði hérlendis og erlendis. Stjórnskipulega heyrir Seðlabankinn undir efnahags- og viðskiptaráðuneyti (sjá lög um Seðlabakann), en jafnframt á Seðlabankinn í töluverðu samstarfi við fjármálaráðuneytið. Þá á Seðlabanki Íslands í samskiptum við Alþingi Íslendinga, en það kýs bankaráð sem hefur m.a. eftirlit með starfsemi bankans. Seðlabankinn á einnig í ýmiss konar samstarfi við fleiri innlenda aðila vegna upplýsingasöfnunar, upplýsingamiðlunar og skýrslugerðar um efnahags-, penginga- og gjaldeyrismál á Íslandi. Þessir aðilar eru m.a. Fjármálaeftirlitið, Hagstofa Íslands, auk ýmissa aðila á fjármálamarkaði, á vinnumarkaði og í atvinnulífinu.
Seðlabanki Íslands er eins konar utanríkisfjármálaráðuneyti Íslands. Bankinn er aðili fyrir Íslands hönd að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðagreiðslubankanum í Basel í Sviss. Þá á starfsfólk bankans í reglulegum samskiptum starfsfólk seðlabanka á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu, við Seðlabanka Evrópu og ýmsa aðra seðlabanka. Að auki á starfsfólk bankans í reglulegum samskiptum við ýmsa viðskiptabanka á stærstu fjármálamörkuðum.