Beint á efnisyfirlit síðunnar

Reglur um gjaldeyrismarkað

Reglur um gjaldeyrismarkað

Reglur þessar eru settar skv. heimild í 18. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands, sbr. og ákvæði 8. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál.

 

1. gr. 
Aðild að millibankamarkaði með gjaldeyri.

Aðilar að millibankamarkaði með gjaldeyri (markaðsaðilar) geta þeir orðið, auk Seðlabanka Íslands, sem hafa ótakmarkað starfsleyfi til gjaldeyrisviðskipta á grundvelli 2. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1992, sbr. 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 679/1994, enda taki þeir á sig ábyrgð og skyldur viðskiptavaka með Bandaríkjadal gagnvart íslenskri krónu samkvæmt ákvæðum þessara reglna. Nefndir aðilar auk ríkissjóðs hafa einir rétt til gjaldeyrisviðskipta við Seðlabankann.

Sækja þarf skriflega til Seðlabanka Íslands um að verða viðskiptavaki á gjaldeyrismarkaði skv. reglum þessum. Seðlabankinn sendir skriflegt svar við fullbúinni umsókn innan eins mánaðar frá því að hún berst. Samþykki bankinn umsóknina tilkynnir hann það öllum aðilum á markaðnum fimm viðskiptadögum áður en aðild umsækjanda tekur gildi.

Um uppsögn viðskiptavaka er fjallað í  13. gr.

2. gr. 
Skyldur viðskiptavaka.

Viðskiptavaka er skylt að gefa upp bindandi kaup- og söluverð Bandaríkjadals ef annar markaðsaðili óskar þess. Sé fjárhæð eigi tilgreind skal viðskiptavaki miða við 1.500.000 Bandaríkjadali, og er honum skylt að eiga viðskipti fyrir þá fjárhæð á tilgreindu verði. Hafi markaðsaðili aðra fjárhæð í huga skal hann tilgreina hana, en þarf ekki að segja til um hvort hann vill kaupa eða selja. Viðskiptavaka er ekki skylt að láta uppi verð fyrir aðra fjárhæð en 1.500.000 Bandaríkjadali. Seðlabanki Íslands er undanþeginn þessu ákvæði og getur átt viðskipti við viðskiptavaka utan hefðbundins markaðstíma skv. 3. gr.

Viðskipti í öðrum gjaldmiðli en Bandaríkjadal eru háð samþykki beggja aðila, og getur viðskiptavaki þá vikist undan að gefa upp verð þótt þess sé óskað.

3. gr. 
Markaðstími.


Millibankamarkaður með gjaldeyri stendur frá kl. 9:15 til 16:00 hvern viðskiptadag.

4. gr. 
Leiðbeinandi verðtilboð.

Viðskiptavakar skuldbinda sig til þess að uppfæra reglulega leiðbeinandi verðtilboð, þ.e. kaup- og sölugengi Bandaríkjadals, á sérstakri síðu í upplýsingakerfi Reuters. Einungis markaðsaðilar skulu hafa aðgang að þessum síðum. Leiðbeinandi verð skal uppfæra eigi sjaldnar en á 30 sekúndna fresti. Þar skal að öðru jöfnu sýnt það verð sem viðskiptavaki er reiðubúinn að kaupa og selja 1.500.000 Bandaríkjadali á.

5. gr.  
Upplýsingakvöð viðskiptavaka.

[Viðskiptavakar skulu skila Seðlabanka Íslands tvenns konar yfirliti, daglegu og mánaðarlegu, um gjaldeyrisviðskipti á millibankamarkaði og gjaldeyrisjöfnuð – í því formi sem Seðlabankinn mælir fyrir um. Upplýsingar vegna hvers viðskiptadags skulu berast fyrir kl. 14.00 næsta dag, en yfirlit um hvern mánuð eigi síðar en kl. 16.00 sjöunda virkan dag næsta mánaðar.

Viðskiptavökum ber einnig að veita Seðlabanka Íslands símleiðis aðrar upplýsingar um viðskipti og annað það sem líklegt er til þess að hafa umtalsverð áhrif á markaðinn. Viðskiptavökum ber að veita slíkum símtölum eðlilegan forgang.]

(Þessari grein var breytt 12. janúar 2004)


6. gr. 
Upplýsingakvöð Seðlabanka Íslands.

Í tengslum við ákvörðun opinbers viðmiðunargengis birtir Seðlabanki Íslands vísitölu gengisskráningar einu sinni á dag á Reutersíðu.

Seðlabanki Íslands sendir reglulega öllum viðskiptavökum upplýsingar um heildarviðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri.

7. gr.
Skráning opinbers viðmiðunargengis.

Seðlabanki Íslands skráir gengisvísitölu og opinbert viðmiðunargengi íslensku krónunnar með hliðsjón af leiðbeinandi verðtilboðum viðskiptavaka eða því verði sem myndast hefur í viðskiptum Seðlabankans og viðskiptavaka. Hvern viðskiptadag milli kl. 10:45 og 11:00 skoðar Seðlabankinn tilboð allra viðskiptavaka, reiknar út miðgengi Bandaríkjadals, skráir opinbert viðmiðunargengi á þeim grundvelli og reiknar út gengi annarra gjaldmiðla í hinni opinberu gengisskráningu sinni. Enn fremur getur Seðlabankinn skráð opinbert viðmiðunargengi á grundvelli síðasta viðskiptaverðs á þessu tímabili.

Seðlabanki Íslands ákveður hvaða gjaldmiðlar verða skráðir í opinberu viðmiðunargengi og birtir kaup- og sölugengi þeirra. Gengisbil hvers gjaldmiðils skal taka mið af meðalgengisbili almenns gengis allra viðskiptavaka í sama gjaldmiðli og skal endurskoðað eigi sjaldnar en árlega. Gengisbili Seðlabankans verður þó aðeins breytt ef gildandi gengisbil bankans víkur frá meðalgengisbili almenns gengis viðskiptavaka um meira en 0,05 af hundraði. Gengisbil gjaldmiðla frá löndum Efnahags- og myntbandalags Evrópu skal vera hið sama og gengisbil evru.

8. gr. 
Viðskipti Seðlabanka Íslands.

Seðlabanka Íslands er ekki skylt að eiga viðskipti við aðra markaðsaðila þótt eftir því sé leitað. Viðskiptavaka er hins vegar skylt að eiga viðskipti við bankann í samræmi við reglur þessar.

9. gr. 
Fjöldi aukastafa í verðtilboðum

Viðskiptavakar skulu nota sama fjölda aukastafa í verðtilboðum og gert er við skráningu opinbers viðmiðunargengis hjá Seðlabanka Íslands.

10. gr. 
Gildisdagsetning viðskipta.

Í viðskiptum með erlendan gjaldeyri skulu gilda sömu reglur og á erlendum gjaldeyrismörkuðum um gildisdagsetningar og millifærslur á erlenda bankareikninga.

11. gr. 
Hæfniskröfur.

Viðskiptavakar skulu sjá til þess að starfsmenn þeirra, sem annast viðskipti á millibankamarkaði, hafi næga þekkingu til að annast gjaldeyrisviðskipti. Viðskiptavakar skulu hafa yfir að ráða fullnægjandi innri eftirlitskerfum til að meta og stýra áhættu í gjaldeyrisviðskiptum. Þá skal innra skipulag viðskiptavaka vera þannig að skýr skil séu milli gjaldeyrisviðskipta og frágangs þeirra. Ef þess er óskað skal viðskiptavaki veita Seðlabanka Íslands upplýsingar um eftirlitskerfi og innri reglur sem viðskiptavaki hefur sett sér í gjaldeyrisviðskiptum. Ef starfsemi viðskiptavaka tekur breytingum eða skipt er um yfirmenn gjaldeyrisviðskipta skal Seðlabankanum tilkynnt um slíkt fyrirfram.  Jafnframt skulu viðskiptavakar tilkynna Seðlabankanum um hverjir sinna gjaldeyrisviðskiptum á millibankamarkaði fyrir þeirra hönd. 

12. gr. 
Fundir markaðsaðila, siðareglur o.fl.

Viðskiptavakar skulu tilnefna tengiliði vegna samskipta við Seðlabanka Íslands og skal við það miðað að þeir séu yfirmenn gjaldeyrisviðskipta viðskiptavaka.  Með reglulegu millibili skal Seðlabankinn boða til funda tengiliða, þar sem fjallað verður um leikreglur markaðarins. Markaðsaðilar skulu stuðla að heilbrigðum viðskiptaháttum, m.a. með því að setja siðareglur fyrir millibankamarkað með gjaldeyri með hliðsjón af alþjóðlegum siðareglum.

Viðskiptavakar skulu fylgjast með öllum vísbendingum um óeðlilegt atferli að því er varðar umfang, tíðni og frágang viðskipta og tilkynna Seðlabanka Íslands um slíkt verði þeir þess áskynja og enn fremur um hvaðeina annað sem óeðlilegt gæti talist.

13. gr. 
Uppsögn viðskiptavaka og viðurlög.

Viðskiptavaki, sem hyggst segja upp aðild að millibankamarkaði samkvæmt reglum þessum, skal tilkynna Seðlabanka Íslands þá ákvörðun skriflega með a.m.k. mánaðar fyrirvara.

Telji Seðlabanki Íslands að viðskiptavaki standi ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt reglum þessum getur bankinn svipt hann rétti til viðskipta við sig.

14. gr. 
Neyðarviðbrögð.

Verði búnaður sá sem notaður er við tilboð og viðskipti óstarfhæfur um tíma, getur Seðlabanki Íslands án fyrirvara ákveðið að viðskipti skuli fara fram með öðrum hætti en lýst er í reglum þessum og skal öllum aðilum að markaðnum tilkynnt um það án tafar. Ef upp koma tímabundnar bilanir á búnaði viðskiptavaka, sem valda því að hann hefur ekki aðgang að nauðsynlegum upplýsingum, getur hann vikist undan að gefa upp verð þótt þess sé óskað samkvæmt 2. gr.

15. gr. 
Gildistaka.

Reglur þessar öðlast gildi hinn 1.janúar 2003.  Jafnframt falla þá úr gildi reglur nr. 742 frá 19. október 2000 um gjaldeyrismarkað.

Reykjavík,  20. desember 2002
SEÐLABANKI ÍSLANDS