Gjaldeyrisforði
Seðlabanki Íslands hefur yfir að ráða verulegum innlendum og erlendum eignum og stýrir þeim til þess að ná bæði meginmarkmiðum bankans um stöðugleika í verðlagi og eins til að stuðla að fjármálastöðugleika. Bankinn á að jafnaði hverju sinni verulegar eignir hjá innlendum fjármálastofnunum í formi útlána og veðlána og fleiri forma. Jafnframt á bankinn erlendar eignir sem reiknast til gjaldeyrisforða Seðlabankans. Til gjaldeyrisforðans telst m.a. gulleign bankans.
Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands takmarkar og dregur úr áhrifum af ytri áhættu tengdri breytingum á aðgangi að erlendu lánsfé og sveiflum í fjármangsstreymi til og frá landinu. Forðinn gerir bankanum kleift að aðstoða Ríkissjóð Íslands við að mæta þörfum fyrir erlendan gjaldeyri og standa við erlendar lánsskuldbindingar. Gjaldeyrisforði skapar þá tiltrú á mörkuðum að landið geti staðið við erlendar skuldbindingar sínar. Þá má nota gjaldeyrisforða til að styðja peningastefnuna.
Í árslok 2011 voru eignir Seðlabanka Íslands samtals um fimmtán hundruð og áttatíu milljarðar króna, eða mjög nálægt virði þess sem framleitt var í landinu á því ári.
Nánari upplýsingar um gjaldeyrisforða og aðrar eignir Seðlabanka Íslands má finna hér:
Efnahagur Seðlabanka Íslands