Verðbólguspá
Verðbólguspá
Verðbólguspá Seðlabanka Íslands gegnir mikilvægu hlutverki við framkvæmd peningastefnunnar. Í raun má segja að verðbólguspá bankans gegni hlutverki nokkurs konar millimarkmiðs stefnunnar svipað og markmiðið um stöðugt gengi áður. Ástæðan er sú að víki verðbólga sem spáð er umtalsvert frá verðbólgumarkmiðinu kallar það á aðgerðir Seðlabankans með svipuðum hætti og þegar gengi krónunnar lækkaði eða hækkaði áður, þegar stöðugt gengi var millimarkmið peningastefnunnar. Því er mikilsvert að verðbólguspár séu eins vel úr garði gerðar og kostur er.
Verðbólguspár byggjast á tölfræðilegu mati á sambandi verðbólgu og nokkurra hagstærða sem taldar eru hafa áhrif á verðbólguna eða eru a.m.k. undanfari hennar, auk þess sem oft er lagt mat á áhrif sérstakra aðstæðna sem líklegt er að hafi áhrif á verðlagsþróun næstu missera. Breytingar á launum og gengi krónunnar eru þær hagstærðir sem reynslan sýnir að standi í hvað nánustum tengslum við verðbólgu. Slík tengsl má finna í öllum hefðbundnum haglíkönum af ákvörðunarstærðum verðbólgu og má rekja til verðlagningar fyrirtækja sem selja vöru og þjónustu á markaði og nota til þess aðkeypt aðföng í formi vinnuafls og innfluttra aðfanga, auk þess að standa í samkeppni við sambærilegar innfluttar afurðir.*
Að meta verðlagshorfur út frá samböndum launa, gengis og verðlags er að því leyti ófullnægjandi að aðferðin beinist ekki að rót vandans, þ.e.a.s. umframeftirspurn á innlendum vöru- og vinnumarkaði sem hefur áhrif á launa- og gengisþróun. Hagfræðisvið Seðlabankans hefur því unnið að gerð verðbólgulíkana sem taka einnig tillit til eftirspurnaráhrifa á verðlag.** Þessi aðferðarfræði er einnig háð takmörkunum þar sem ekki er tekið tillit til áhrifa verðbólguvæntinga á verðlag og gagnkvæmra áhrifa verðlags á eftirspurn. Því hefur hagfræðisvið Seðlabankans hafið þróun heildstæðs þjóðhagslíkans sem tekur á öllum þessum þáttum.
Meðfylgjandi mynd og tafla sýna nýjustu verðbólguspá Seðlabanka Íslands frá febrúar 2013. Verðbólguspá Seðlabankans er einnig byggð á þjóðhagsspá bankans sem er birt í greininni um verðbólguhorfur og stefnuna í peningamálum í Peningamálum 2012/4.

