Peningastefnunefnd
Peningastefnunefnd
Samkvæmt lögum nr. 5/2009 um breytingar á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands eru ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viss viðskipti við lánastofnanir, ákvörðun bindiskyldu og viðskipti á gjaldeyrismarkaði.
Meðlimir í peningastefnunefnd:
Í peningastefnunefnd sitja Már Guðmundsson seðlabankastjóri, sem er formaður nefndarinnar, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík og Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands.

MYND AF PENINGASTEFNUNEFND (tekin í mars 2012).
Talið frá vinstri: Þórarinn G. Pétursson, Katrín Ólafsdóttir, Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoëga.
Mynd af peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands sem var tekin í byrjun nóvember 2009:
Mynd af peningastefnunefnd. Á myndinni eru talið frá vinstri: Þórarinn G. Pétursson, Anne Sibert, Már Guðmundsson formaður, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoëga.
Mynd af fyrstu peningastefnunefnd (tekin 1. júlí 2009):
Mynd af peningastefnunefnd. Talið frá vinstri: Gylfi Zoëga, Arnór Sighvatsson, Svein Harald Øygard, þáverandi formaður, Anne Sibert og Þórarinn G. Pétursson.
Vaxtaákvörðunardagar, birtingartími fundargerða peningastefnunefndar og útgáfudagar Peningamála 2009
| Dagsetning vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar | Greinargerð | Vikur frá síðasta vaxtaákvörðunardegi | Fundargerð peningastefnunefndar |
|---|---|---|---|
| 29. janúar | Peningamál 2009/1- uppfærð spá | 11 | |
| 19. mars | FréttatilkynningFréttatilkynning | 7 | 02. apríl |
| 08. apríl | FréttatilkynningFréttatilkynning | 3 | 22. apríl |
| 07. maí | Peningamál 2009/2 | 4 | 21. maí |
| 04. júní | Fréttatilkynning Fréttatilkynning | 4 | 18. júní |
| 02. júlí | FréttatilkynningFréttatilkynning | 4 | 16. júlí |
| 13. ágúst | Peningamál 2009/3- uppfærð spá | 6 | 27. ágúst |
| 24. september | FréttatilkynningFréttatilkynning | 6 | 08. október |
| 05. nóvember | Peningamál 2009/4 | 6 | 19. nóvember |
| 10. desember | FréttatilkynningFréttatilkynning | 6 | 23. desember |