Beint á efnisyfirlit síðunnar

Markaðsviðskipti til stuðnings peningastefnu

Markaðir

Markaðsviðskipti og fjárstýring hefur umsjón yfir markaðsstarfsemi Seðlabanka Íslands, bæði með almennu eftirliti og þátttöku á mörkuðum. Þeir markaðir sem bankinn hefur eftirlit með eru gjaldeyrismarkaður, markaður með gjaldmiðlaskiptasamninga og krónumarkaður. Einnig fylgist bankinn með skipulögðum verðbréfamarkaði án þess að hafa beint eftirlit með honum. Seðlabankinn getur átt viðskipti á ofangreindum mörkuðum, telji hann það þjóna markmiðum bankans.