Beint á efnisyfirlit síðunnar

Seðlar í gildi

 Seðlar í gildi á Íslandi

 



5000 krónur

Fyrst settur í umferð árið 1986. Í nóvember 2003 setti Seðlabankinn í umferð nýja gerð 5000 króna seðils. Stærð seðilsins er 70 x 155 mm. Aðallitur er dökkblár á fjöllitum grunni.
  
Á framhlið er Ragnheiður Jónsdóttir biskupsfrú á Hólum og Gísli Þorláksson biskup ásamt tveimur fyrri konum sínum, Gróu Þorleifsdóttur og Ingibjörgu Benediktsdóttur. 
  
Á bakhlið er Ragnheiður Jónsdóttir ásamt tveimur stúlkum við hannyrðir og til hliðar er fangamark úr sjónabók Ragnheiðar.
  
Borðar og grunnmynstur á báðum hliðum ásamt útsaumsletri á framhlið er gert eftir altarisklæði úr Laufáskirkju í Þjóðminjasafni.
  
Blindramerki er þrjú lóðrétt og upphleypt strik á framhlið.
Sjá öryggisþætti


2000 krónur

Fyrst settur í umferð árið 1995. Stærð seðilsins er 70 x 150 mm.

Aðallitur er brúnn og gulur á framhlið, en blár og gulur á bakhlið.
  
Á framhlið er mynd af Jóhannesi S. Kjarval listmálara; að baki hans er stílfærður hluti af málverki Kjarvals, Úti og inni.
  
Á bakhlið má sjá myndina Flugþrá eftir Kjarval og teikningu hans, Kona og blóm. 
  
Blindramerki er upphleyptur opinn þríhyrningur á framhlið.
Sjá öryggisþætti 



1000 krónur

Fyrst settur í umferð árið 1984. Í nóvember 2004 setti Seðlabanki Íslands í umferð nýja gerð seðilsins. Stærð seðilsins er 70 x 150 mm.

Aðallitur á framhlið er fjólublár á fjöllitagrunni. Þar er mynd af Brynjólfi Sveinssyni (1605-1675) Skálholtsbiskup, auk borða og bakgrunni með myndefni af rekkjurefli í Þjóðminjasafni og á fleti er verðgildi í bókstöfum með leturgerð af skírnarfonti úr Brynjólfskirkju.
  
Á bakhlið er mynd af Brynjólfskirkju í Skálholti og að baki sneiðmynd af kirkjunni. Grunnmynstur er hið sama og í borða á framhlið. Til hliðar er Maríumynd úr fingurgulli úr eigu Brynjólfs biskups. 
  
Blindramerki er tvö lóðrétt og upphleypt strik á framhlið.
Sjá öryggisþætti
 


500 krónur

Fyrst settur í umferð árið 1981. Í október 2005 setti Seðlabanki Íslands í umferð nýja gerð seðilsins. Stærð seðilsins er 70 x 145 mm.  Aðallitur er rauður með fjöllitaívafi á framhlið.
  
Á framhlið er mynd af Jóni Sigurðssyni forseta, borði dreginn eftir fyrirmynd á 500 kr. seðli Landsbanka Íslands árið 1944, grunnmynstur eftir veggteppi úr eigu Jóns Sigurðssonar.
  
Á bakhlið er Jón Sigurðsson við skriftir, veggteppi og aðrir munir úr safni Jóns Sigurðssonar í Þjóðminjasafni, til hliðar er mynd af Lærða skólanum í Reykjavík þar sem þingfundir voru haldnir í tíð Jóns Sigurðssonar. 
  
Blindramerki er eitt lóðrétt og upphleypt strik á framhlið.
Sjá öryggisþætt