Rafræn greiðslumiðlun
Almennt um greiðslumiðlun, greiðslu- og uppgjörskerfi
Fjármagn er mikilvægt hreyfiafl í hagkerfinu. Greiðslumiðlun og greiðslukerfi eru undirstöður hagkerfisins sem sjá um tilflutnings fjármagns í þágu einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Greiðslumiðlunin grundvallast á greiðslukerfum og framkvæmist með ólíkum hætti eftir því hvaða greiðslumiðill var notaður. Algengustu greiðslumiðlarnir í notkun eru ýmiss konar rafrænir greiðslumiðlar, seðlar, mynt og ávísanir.
Uppbygging greiðslumiðlunar, greiðslu- og uppgjörskerfa á Íslandi.
Rafræn greiðslumiðlun stuðlar að gegnsæi og skilvirkni. Hlutfall rafrænnar greiðslumiðlunar er hátt á Íslandi og byggir á notkun greiðslukerfa sem mörg hver tengjast. Peningafærslur frá mismunandi greiðslumiðlum fara ólíkar leiðir í gegnum greiðslu- og uppgjörskerfi, sem saman sjá um miðlun, uppgjör og skráningu viðskiptanna. Peningafærslurnar safnast úr smærri kerfum yfir í stærri kerfi og mörg fjármálafyrirtæki bjóða greiðslumiðlun og veita tengda fjármálaþjónustu. Þar sem stærstu kerfin byggja á tölvubúnaði RB er greiðslumiðlun hér á landi er mjög miðlæg og tengist með einum eða öðrum hætti starfsemi Reiknistofu bankanna (RB). Þetta fyrirkomulag stendur á gömlum merg og áratuga farsælu samstarfi banka og sparisjóða. Kostir þessa eru m.a. aukin samhæfing, yfirsýn og rekstrarhagkvæmni. Fyrirkomulagið getur hins vegar haft í för með sér rekstraráhættu, þ.e. að vandamál sem upp koma í einu kerfi geta hugsanlega smitast yfir í önnur kerfi.
Mikilvægustu greiðslu- og uppgjörskerfin eru stórgreiðslukerfi, jöfnunarkerfi og verðbréfauppgjörskerfi. Seðlabanki Íslands annast daglega umsjón með stórgreiðslukerfi, Greiðsluveitan hf. annast jöfnunarkerfi og Verðbréfaskráningu Íslands hf. annast umsjón með verðbréfauppgjörskerfi. Tæknilegur rekstur þessara kerfa er í höndum RB. Seðlabanki Íslands er með yfirsýn með greiðslumiðluninni, og ofangreindum greiðslu- og uppgjörskerfum vegna mikilvægis þessara undirstöðuþátta fyrir fjármálastöðugleika og hagkerfið í heild.
Gjarnan er litið á þau kerfi sem miðla mikilli veltu og verðmætum á milli fjármálastofnana sem þýðingarmestu kerfin og kerfislega mikilvæg. Ef greiðandi og móttakandi fjármagns eru viðskiptamenn í ólíkum lánastofnunum fer jafnframt fram greiðsla á milli lánastofnananna í samræmi við greiðslufyrirmæli greiðandans. Allar greiðslur sem fram fara milli lánastofnana í íslenskum krónum eru endanlega gerðar upp í gegnum reikninga þeirra í Seðlabanka Íslands.