Beint á efnisyfirlit síðunnar

Samningar og samstarf

Samningar og samstarf

Miklu skiptir að fjármálakerfið gegni hlutverki sínu með virkum og öruggum hætti því það starfar sem farvegur fjármagns og áhættudreifingar í efnahagslífinu. Til þess að skapa sem best skilyrði til árangurs móta stjórnvöld almenna umgjörð með löggjöf og ábyrgri hagstjórn. Jafnframt hafa þau falið Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu aðgreind hlutverk til að stuðla að heilbrigði fjármálakerfisins. Í aðalatriðum má segja að Seðlabankanum sé falið að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi í heild og í þjóðhagslegu samhengi (e. financial stability). Fjármálaeftirlitið gætir þess hins vegar að fjármálastarfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur og samþykktir og hefur eftirlit með fjármálafyrirtækjum (e. supervison). Störf beggja stofnana stuðla að fjármálastöðugleika og mikilvægt er að þær vinni vel saman.

Hér eru samstarfssamningar Seðlabankans við Fjármálaeftirlitið og ráðuneyti:

Samstarfssamningur Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins (frá 6. janúar 2011)
Samkomulag um fjármálastöðugleika milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (frá 17. ágúst 2010)
Samkomulag forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands um samráð varðandi fjármálastöðugleika og viðbúnað (frá 16. ágúst 2010)

Sjá ennfremur:

Samkomulag um samstarf á milli fjármálaeftirlita, seðlabanka og fjármálaráðuneyta í ESB um fjármálastöðugleika á milli landa - viðbót er varðar þau lönd á Evrópska efnahagssvæðinu sem ekki eru í ESB, þ.e. Ísland, Liechtenstein og Noreg (frá 10. júní 2010)