Peningastefnunefnd
Peningastefnunefnd
Samkvæmt lögum nr. 5/2009 um breytingar á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands eru ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viss viðskipti við lánastofnanir, ákvörðun bindiskyldu og viðskipti á gjaldeyrismarkaði.
Meðlimir í peningastefnunefnd:
Í peningastefnunefnd sitja Már Guðmundsson seðlabankastjóri, sem er formaður nefndarinnar, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Katrín Ólafsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík og Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands.

MYND AF PENINGASTEFNUNEFND (tekin í mars 2012).
Talið frá vinstri: Þórarinn G. Pétursson, Katrín Ólafsdóttir, Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoëga.
Mynd af peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands sem var tekin í byrjun nóvember 2009:
Mynd af peningastefnunefnd. Á myndinni eru talið frá vinstri: Þórarinn G. Pétursson, Anne Sibert, Már Guðmundsson formaður, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoëga.
Mynd af fyrstu peningastefnunefnd (tekin 1. júlí 2009):
Mynd af peningastefnunefnd. Talið frá vinstri: Gylfi Zoëga, Arnór Sighvatsson, Svein Harald Øygard, þáverandi formaður, Anne Sibert og Þórarinn G. Pétursson.
Vaxtaákvörðunardagar, birtingartími fundargerða peningastefnunefndar og útgáfudagar Peningamála 2013
| Dagsetning vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar | Greinargerð | Vikur frá síðasta vaxtaákvörðunardegi | Fundargerð peningastefnunefndar |
|---|---|---|---|
| 06. febrúar | Peningamál 2013/1 - uppfærð spá | 8 | 20. febrúar |
| 20. mars | Vaxtaákvörðun | 6 | 03. apríl |
| 15. maí | Peningamál 2013/2 | 8 | |
| 12. júní | Vaxtaákvörðun | 4 | |
| 21. ágúst | Peningamál 2013/3 - uppfærð spá | 10 | |
| 02. október | Vaxtaákvörðun | 6 | |
| 06. nóvember | Peningamál 2013/4 | 5 | |
| 11. desember | Vaxtaákvörðun | 5 |