Mynd af Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands

Þjóðhátíðarsjóður                                                 
                                                                           

Seðlabanki Íslands annast ritara- og skrifstofustörf fyrir Þjóðhátíðarsjóð samkvæmt nánara samkomulagi milli bankans og sjóðsstjórnar, sbr. 8. gr. skipulagsskrár fyrir Þjóðhátíðarsjóð nr. 361 frá 30. september 1977, sbr. auglýsingar nr. 673 frá 12. september 2000, nr. 987. frá 19. október 2005 og nr. 1161 frá 18. desember 2006 um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð.

Tilgangur sjóðsins:
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Umsóknir og úthlutun styrkja:
Styrkir úr Þjóðhátíðarsjóði eru nú auglýstir til umsóknar í lok júní eða byrjun júlí ár hvert og er umsóknarfrestur  til loka ágústmánaðar. Stefnt er síðan að því að úthlutun styrkja ljúki 1. desember ár hvert með athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Fréttatilkynning um úthlutun er send m.a. til fjölmiðla og jafnframt birt á heimasíðu þessari og forsætisráðuneytisins. 

Ljósmynd af styrkþegum og stjórn Þjóðhátíðarsjóðs sem tekin var 1. desember 2009 við athöfn í Þjóðmenningarhúsi í tilefni af úthlutun 2009 vegna ársins 2010:

Styrkþegar og stjórn Þjóðhátíðarsjóðs 1. desember 2009 (JPG) 
(Mynd tekin á vegum Þjóðmenningarhússins)

Auglýsing um styrki:
Auglýsing um styrki vegna ársins 2011 (Pdf-skjal)

Umsóknareyðublöð:
Umsóknareyðublað vegna ársins 2011 (Word-skjal)


Skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð:
Skipulagsskrá (pdf-skjal, 16 kb)

Styrkveitingar:
Fréttatilkynning 1-12-2009 vegna ársins 2010 (Pdf-skjal)
Fréttatilkynning 1-12-2008 vegna ársins 2009   (Pdf-skjal)
Fréttatilkynning um úthlutun Þjóðhátíðarsjóðs vegna ársins 2008 (Pdf-skjal)
Fréttatilkynning um úthlutun Þjóðhátíðarsjóðs vegna ársins 2007 (Pdf-skjal)


Árlegum úthlutunum styrkja sjóðsins lýkur 2010 vegna ársins 2011:
Sjá  hér þingsályktun um að leggja niður Þjóðhátíðarsjóð.

Ýmsar upplýsingar um Þjóðhátíðarsjóð má sjá á heimasíðu forsætisráðuneytisins http://www.forsaetisraduneyti.is/afgreidsla/sjodir/thjodhatidarsjodur/

Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781 eða á netfanginu: thjodhatidarsjodur@sedlabanki.is 

Fyrir þá sem þurfa Acrobat Reader vegna pdf-skjala:
Til þess að geta lesið pdf-skjölin þarf Acrobat Reader. Í hann næst hjá Adobe. Til þess að ná í það forrit, smellið hér: Acrobat Reader

VerðbólgaMeira »

Vísitala neysluverðs, 12 mánaða breyting. Síðasta gildi: 4,5%
Verðbólgumarkmið er 2,5%

Vextir SeðlabankansMeira »
Vextir Seðlabankans
Daglán 8,50%
Veðlán 7,00%
Viðskiptareikningar innlánsstofnana 5,50%
Gengi gjaldmiðlaMeira »
Gjaldmiðill 2.9.2010 Br. *
USDBandaríkjadalur 119,72 -0,18%
GBPSterlingspund 184,34 -0,07%
DKKDönsk króna 20,62 0,05%
EUREvra 153,50 0,05%
* Breyting frá síðustu skráningu
GengisvísitölurMeira »
Gengisvísitölur 2.9.2010 Br. *
Viðskiptavog þröng** 208,16 0,09%
* Breyting frá síðustu skráningu
** Vísitalan hefur verið endurreiknuð þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar sem Seðlabankinn hefur hætt að reikna.
Aðrir vextirMeira »
Aðrir vextir
Dráttarvextir frá 1.9.2010 14,00%
02.09.10 REIBID REIBOR
O/N 5,500% 6,000%
S/W 5,600% 6,100%
1 M 6,000% 6,500%
3 M 5,850% 6,100%
1 Y 5,000% 5,250%


© 2005 Seðlabanki Íslands - Öll réttindi áskilin
Póstfang: Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavik - Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Sími: 569 9600 - Bréfasími: 569 9605

Prentvæn útgáfa

Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli