Mynd af Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands


16. desember 2008
Breytingar á reglum um gjaldeyrismál

Seðlabanki Íslands hefur gefið út nýjar reglur um gjaldeyrismál að fengnu samþykki viðskiptaráðherra. Meginbreytingar frá fyrri reglum lúta að undanþágum sem veittar eru tilteknum hópum vegna brýnna hagsmuna og því að litlar líkur eru taldar á að viðskipti þeirra muni valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum. Ríki og sveitarfélögum er veitt undanþága frá reglunum, svo og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis og sveitarfélaga sem starfa samkvæmt sérlögum. Fyrirtæki sem eru aðilar að fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og fyrirtæki sem fengið hafa leyfi iðnaðarráðherra til olíuleitar eru undanþegin reglunum. Þá er skilanefndum sem skipaðar eru á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki veitt undanþága.

Fyrirtæki sem hafa yfir 80% af tekjum og gjöldum erlendis geta sótt um undanþágu til Seðlabankans frá tilteknum greinum reglnanna er varða verðbréfaviðskipti erlendis, lánveitingar og lántökur, ábyrgðir og afleiðuviðskipti, svo og skilaskyldu á gjaldeyri. Seðlabankinn mun birta á vefsíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem fá undanþágu samkvæmt þessu.

Þá eru heimildir viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja til gjaldeyrisviðskipta rýmkaðar.

Aðrar minniháttar breytingar lúta m.a. að því að nú er skýrt að ekki eru takmarkanir á beinni fjárfestingu, en athygli er þá vakin á því að ekki er heimil yfirfærsla eða flutningur á fjármunum frá landinu sem tengjast sölu á beinum fjárfestingum.

Reglurnar skal endurskoða eigi síðar en 1. mars 2009. Áréttað er að lögin sem reglurnar byggja á eru tímabundin og falla úr gildi í nóvemberlok 2010.


Nr. 50/2008
16. desember 2008

Sjá nánar:

Vefsvæði hjá SÍ fyrir lög og reglur

Reglur um gjaldeyrismál  nr. 1130  15. desember 2008


VerðbólgaMeira »

Vísitala neysluverðs, 12 mánaða breyting. Síðasta gildi: 4,5%
Verðbólgumarkmið er 2,5%

Vextir SeðlabankansMeira »
Vextir Seðlabankans
Daglán 8,50%
Veðlán 7,00%
Viðskiptareikningar innlánsstofnana 5,50%
Gengi gjaldmiðlaMeira »
Gjaldmiðill 2.9.2010 Br. *
USDBandaríkjadalur 119,72 -0,18%
GBPSterlingspund 184,34 -0,07%
DKKDönsk króna 20,62 0,05%
EUREvra 153,50 0,05%
* Breyting frá síðustu skráningu
GengisvísitölurMeira »
Gengisvísitölur 2.9.2010 Br. *
Viðskiptavog þröng** 208,16 0,09%
* Breyting frá síðustu skráningu
** Vísitalan hefur verið endurreiknuð þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar sem Seðlabankinn hefur hætt að reikna.
Aðrir vextirMeira »
Aðrir vextir
Dráttarvextir frá 1.9.2010 14,00%
02.09.10 REIBID REIBOR
O/N 5,500% 6,000%
S/W 5,600% 6,100%
1 M 6,000% 6,500%
3 M 5,850% 6,100%
1 Y 5,000% 5,250%


© 2005 Seðlabanki Íslands - Öll réttindi áskilin
Póstfang: Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavik - Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Sími: 569 9600 - Bréfasími: 569 9605

Prentvæn útgáfa

Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli