Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns
Seðlabanki og Þjóðminjasafn Íslands hafa með sér samstarf um rekstur myntsafns, en samning um það efni staðfesti menntamálaráðherra 28. janúar 1985. Í samningnum er kveðið svo á að myntfræðilegt efni stofnananna beggja skuli haft í einu safni sem bankinn rekur, þó þannig að jarðfundnar myntir og sjóðir séu eftir sem áður í Þjóðminjasafni. Um efni úr Þjóðminjasafni hefur verið gerð sérstök skrá svo að unnt sé að greina það frá öðru.
Stofninn í myntsafninu er íslensk mynt og seðlar, erlendir peningar frá fyrri öldum, einkum þeir sem koma við íslenskar heimildir, og auk þess yngri gjaldmiðill helstu viðskiptaþjóða Íslendinga. Í safninu eru nú hátt í tuttugu þúsund myntir og nálægt fimm þúsund seðlagerðir.
Yfirlitssýning á efni úr myntsafninu var opnuð í nýju sýningarrými í anddyri bankans að Kalkofnsvegi 1 15. júní 2006. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 13:30 - 15:30. Aðgangur er ókeypis.
Safnið hefur gefið út eftirtalin rit:
Alþingishátíðarpeningarnir. Kristján Eldjárn tók saman. 1986. (Myntrit 1).
Gjaldmiðill á Íslandi. Ólafur Pálmason og Sigurður Líndal tóku saman. 1994. (Myntrit 2).
Opinber gjaldmiðill í 220 ár. Anton Holt og Freyr Jóhannesson tóku saman. 1997. (Myntrit 3).
Opinber gjaldmiðill á Íslandi - 2. útg. Október 2002. (Myntrit 3). - Pdf-skjal, 1 MB
Ath.: Á bls. 66-68 í ritinu er nefnd samstæðan ?Íslensk mynt árið 2001?. Þar á að standa ?Íslensk mynt árið 2000?.
Heimilisfang safnsins, símanúmer o.fl.:
Einholt 4, 105 Reykjavík - Sími: 569 9962, 569 9964 - Fax: 569 9609 - Netfang: safnadeild@sedlabanki.is